Við erum búin að fá lyklana að nýja húsinu og erum byrjuð að flytja dótið okkar yfir. Þar sem húsið er alveg við hliðina á vinnunni, tek ég nokkra kassa með á hverjum degi. Fólkið á rannsóknarstöðinni fer ábyggilega að halda að ég búi í bílnum, einn daginn eru dótapokar í sætunum og næsta dag er sængunum troðið í framsætið... Ég er síðan búin að leigja sendiferðabíl og húsgögnin verða flutt á laugardaginn.
Óðinn er mjög hrifinn af nýja húsinu og sérstaklega stiganum og garðinum. Ég hlakka líka mikið til að flytja.
Til hamingju með nýja húsið ykkar þetta verður nú æðislegt og gaman að geta svo komið og kíkt á ykkur:-)
ReplyDeleteÞað gengur fínt hjá okkur með litla prins en við höfum nú stundum óvart kallað hann Óðinn ekki leiðinlegt það svo segjum við bara Ó NO þetta er sko bara fast við Óðinn :-)
Jæja knús í bili sætu mæðgin